Styrkir
Stjórn Málræktarsjóðs ákvað á fundi sínum í september að auglýsa eftir umsóknum um styrki. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2001 sem auglýst er. Ákveðið var að veita einn eða tvo styrki, að hámarki 500 þúsund krónur. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember.